Viðburður

Skíðaferð FV 2026!!

Jæja gott fólk, það er komið að Skíðaferð FV 2026!! Þetta er einn stærsti og skemmtilegasti viðburður ársins. Það eru aðeins 18 pláss í boði, svo það er mikilvæegt að skrá sig sem fyrst! Verðið á ferðinni er 22.900kr og innifalið er:

  • Rútuferð fram og til baka, boðið upp á drykki í rútunni 🍻

  • Vísó hjá Vegagerðinni

  • Gisting á Backpackers

  • 20% afsláttur af pössum í fjallið

  • Apres ski party á laugardaginn í brekkunni

  • Pizza + party á Vamos á laugardagskvöldinu

  • Fleira sem kemur í ljós seinna

Eins og þið sjáið þá er þetta stútfull dagskrá af fjöri, sem borgar sig fljótt! Greiðslufrestur er til 1. febrúar. Það verður líka biðlisti sem er hægt að skrá sig á ef pláss fyllast. Ef það verða forföll, þá göngum við á biðlistann og látum ykkur vita.

Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi ferðina, þá er best að senda á okkur á instagramminu eða nord@hi.is

Sjáumst í Hlíðarfjalli!! 🎉🎉🎉

Akureyri
Fös 13. Feb til Sun 15. Feb
Skráningu lokið
Skráðir: 14 af 18
Til að skrá sig á viðburð þarftu að
skrá þig inn