|
Hvar er félagsaðstaða Nörd? Nörd er með félagsaðstöðu í kjallara Endurmenntunarstofnunar við Dunhaga (í sama húsi og Tæknigarður). Einungis félagar í Nörd hafa aðgang að félagsaðstöðunni. Sjá Hvað græði ég á því að gerast meðlimur í Nörd? Hvernig næ ég í Nörd? Þú getur hringt í símann sem er staðsettur niðri í félagsaðstöðu Nörd, síminn þar er 525-4760. Einnig geturðu sent e-mail á ft@nord.is eða sent inn ábendingu :) Hvernig gerist ég meðlimur í Nörd? Komdu niður í kjallara og borgaðu félagsgjaldið eða millifærðu það á bankareikning 0311-26-5587 kt. 551087-1589 og sendu kvittun á ft@hi.is. Félagsgjaldið er 4500 kr. og viðskiptavinir Kaupþings fá svo 1500 kr. endurgreitt. Hvað græði ég á því að gerast meðlimur í Nörd? Besta aðstaða nemendafélags hérna megin við Suðurgötuna. * Góðir sófar * Ísskápur * Örbylgjuofn * Frítt kaffi fyrir meðlimi * Samlokugrill * Playstation * Arcade Cabinett * Bókasafn * Hópherbergi Virkt félagslíf * Vísindaferðir til fyrirtækja sem snerta námið * Óvissuferð * Ofurnörd * Árshátíð * Aðalfundur * Próflokadjamm * Spilakvöld * Hin árlega Esjuganga Nörd Ýmis fríðindi * Afsláttur hjá Hróa Hetti Hringbraut - 40% afsláttur af sóttum pizzum - 20% afsláttur af mat í sal - Hádegishlaðborð með gosi á 1090 kr.
* Bjór á 500 kr á Dillon öll kvöld til miðnættis, bjór og skot á 1000 kr.
* 13% afsláttur hjá Serranos * Nemendur í Nörd eru duglegir að hjálpa hvor öðrum með námið. * Skemmtilegar umræður í Nördakjallaranum. * Aðgangur að þróunarnetþjónum (Linux og Microsoft). * Breytingastjórnunarkerfi fyrir kóða (CVS). * Aðgangur að Microsoft bókum, MSDN library og öðru sem viðkemur forritun í Microsoft umhverfi. * Nörd sér um dreifingu Microsoft hugbúnaðar til nemenda skorarinnar skv. MS Academic Alliance.
|