|
Lög félags tölvunarfræðinemaa 1. Nafn félagsins er "Nörd Félag tölvunarfræði- og hugbúnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands". 2. Varnarþing félagsins er í Reykjavík. 3. Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna og halda uppi skemmtanalífi meðal félagsmanna s.s.árshátíðum, vísindaferðum, jólaglöggi og þeim uppákomum sem félagsmönnum dettur í hug hverju sinni. Ennfremur að sjá um kynningu og fræðslu á tölvunarfræði og skyldum málefnum. 4. Aðalfundur skal haldinn um mánaðamótin mars - apríl ár hvert og skal til hans boðað með að minnsta kosti tíu daga fyrirvara gegnum tölvupóst. Aðalfundur er æðsta vald í málefnum félagsins og á honum skal skipa í öll embætti til þess nema 1.árs fulltrúa sem skal vera kosið í á fyrsta mannfagnaði hvers skólaárs. Rétt til fundarsetu hafa allir þeir sem skráðir eru í tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Íslands en atkvæðisbærir skulu þeir einir teljast sem skráðir eru í Nörd. Þeir einir hafa leyfi til að bjóða sig fram í embætti sem skráðir eru í félagið. Dagskrá aðalfundar: 1. Skýrsla stjórnar 2. Stjórnin leggur fram reikninga félagsins. 3. Umræður um skýrslur og reikninga. 4. Rætt og kosið um lagabreytingar. 5. Kosning nýrrar stjórnar. 6. Kosið í önnur embætti (íþróttafulltrúi, IAESTE fulltrúi, vefstjóri o.fl.). 7. Önnur mál.
4.1. Kosið skal til embætta í eftirfarandi röð:
1. Formaður
2. Ritari
3. Gjaldkeri
4. Skemmtanastjóri
5. Hagsmunafulltrúi nemenda
6. Vefstjóri
7. IAESTE fulltrúi
8. Hirðljósmyndari
9. Íþróttafulltrúi
10. Önnur embætti
5. Embætti félagsins eru eftirfarandi: Stjórn: Hana skulu skipa sex aðilar: formaður, ritari, féhirðir, hagsmunafulltrúi, skemmtanastjóri og nýnemafulltrúi. Nýnemafulltrúi hefur þá ekki atkvæðisrétt í stjórn. Stjórn félagsins er skylt að vera meðlimir í Nörd. Hún þarf þó ekki að greiða nema helming félagsgjaldsins. Formaður: Hann skal sitja embættisfundi fyrir hönd félagsins og vera andlit þess útávið auk þess að vera blaðafulltrúi og kynningarfulltrúi. Hann skal sitja fyrir hönd félagsins deilda- og deilarráðsfundi, sviðsráðsfundi sem og aðra fundi sem hann er skipaður í, í bróðerni við önnur félög innan deildar Iðnaðar-, Vélaverkfræði og Tölvunarfræði (IVT). Formaður skal tryggja að deild Iðnaðar-, véla og tölvunarfræði (IVT) eigi fulltrúa í Náttverki, hagsmunasamtökum nemenda á Verkfræði- og náttúruvísindasviði (VON). Það skal skiptast á milli NÖRD og Vélarinnar hvor formaður skal vera fulltrúi deildarinnar í Náttverki. Í þau skipti sem formaður NÖRD er fulltrúi í Náttverki skal formaður Vélarinnar vera varamaður hans og öfugt. Formaður skal rita skýrslu stjórnar og afhenda ritara fyrir lok kjörtímabils. Tilgangur skýrslunnar er að miðla gagnlegum upplýsingum til næstu stjórnar. Ritari: Hann skal rita fundargerðir stjórnarfunda og halda utanum öll skjöl sem félaginu kunna að berast. Hann mun starfa sem varaformaður og tekur við formanni í fjarveru hans, og uppfylla starfslýsingu formanns samkvæmt þessum lögum. Hann er einnig blaðafulltrúi með formanni og sér um kynningar í blöð. Ritari ber ábyrgð á að varðveita skjalasafn félagsins. Áður en kjörtímabili ritara líkur skal hann bæta í skjalasafnið 1) síðasta ársreikningi félagsins, 2) skýrslu stjórnar, 3) skýrslu skemmtinefndar, 4) uppfærðum lögum félagsins, 5) öðrum skjölum sem ritari telur að félagið eigi að varðveita, 6.) rita fundargerð af fundum stjórnar sem er aðgengileg fyrir meðlimi Nörd. Féhirðir: Hann skal annast öll fjármál félagsins og halda bókhald um rekstur félagsins og skila ársreikningi á aðalfundi. Hann skal einnig sjá um útleigu skápa og annarra eigna nörd. Skemmtanastjóri: Skemmtanastjóri skal, í samráði við stjórn félagsins, sjá um skipulagningu og framkvæmd alls skemmtanalífs á vegum félagsins, þ.m.t. vísindaferðir. Undantekning á þessari reglu er árshátíð félagsins Skemmtanastjóri skal rita skýrslu skemmtinefndar og afhenda ritara fyrir lok kjörtímabils. Tilgangur skýrslunnar er að miðla gagnlegum upplýsingum til næstu skemmtinefndar. Hagsmunafulltrúi: Hann skal verða meðstjórnandi og sitja stjórnarfundi. Hann er trúnaðarmaður nemenda varðandi námið og fær aðgang að kennslukönnuninni fyrir hönd tölvunar- og hugbúnaðarverkfræðinema. Hann situr sem deildarfulltrúi. Hann skal halda fund með deildarformanni helst mánaðarlega og ekki seinna en á tveggja mánaða fresti og fara yfir stöðu kennslu og hagmunamálefni nemenda. Hann skal sitja fyrir hönd félagsins deilda- og deildarráðsfundi, sviðsráðsfundi sem og aðra fundi sem hann er skipaður í, í bróðerni við önnur félög innan deildar Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og Tölvunarfræði (IVT). Íþróttafulltrúi: Stuðlar að áhuga "heilsusamlegrar" hreyfingar félagsmanna Nörd. Hann kemur að skipulagningu og framkvæmd keppnis- og íþróttaviðburða eins og t.d. hina árlegu miðnætur Esjugöngu. IAESTE fulltrúi: Kosinn skal einn fulltrúi til starfa til eins árs með stjórn IAESTE við Háskóla Íslands. Ef upp kemur sú staða að enginn meðlimur á vegum félags tölvunarfræðinema er starfandi við nefndina skalt stjórn skipa fulltrúa sem fyrst. 1.árs fulltrúi: Hann skal í samstarfi við stjórnina, sjá um kynningu á störfum félagsins fyrir 1.árs nemum. Hann skal einnig vera tengiliður 1.árs nema við stjórn félagsins. Kosið skal um þetta embætti eins fljótt og auðið er á hverju ári. Stjórn er heimilt að víkja 1. árs fulltrúa frá störfum að undangenginni viðvörun telji stjórnin hann ekki sinna hlutverki sínu. Stjórn skipar þá nýjan fulltrúa eins fljótt og auðið er. Hirðljósmyndari: Hirðljósmyndari ber ábyrgð á myndavél félagsins og að taka myndir á viðburðum. Hann er ekki kosinn á aðalfundi heldur er hann kjörinn á fyrsta mannfagnaði nýs árs.
Myndbandanefnd: Í henni skulu sitja 1-3 aðilar. Nefndin skal í samráði við stjórn gera kynningarmyndband á tölvunarfræði - og hugbúnaðarverkfræðideild fyrir nýnemadaga Háskóla Íslands. Einnig skal nefndin að sjá um upptökur á Ofurnörd og gerð á sérstöku Ofurnörd-myndbandi. Nefndin hefur frelsi í verkefnavali að öðru leiti.
7. Öll embætti félagsins, að 1.árs fulltrúa undanskildum, öðlast gildi strax að aðalfundi loknum. 8. Rétt til inngöngu í félagið eiga allir þeir stúdentar sem stunda nám við Tölvunarfræði eða Hugbúnaðarverkfræði í Háskóla Íslands. Þeir sem hafa beina hagsmuni að félaginu en eru ekki skráðir í framangreint nám eiga möguleika á inngöngu í félagið með samþykki stjórnar. Löglegir félagsmenn teljast allir þeir sem greitt hafa félagsgjöld á viðkomandi skólaári. 9. Verði félagið lagt niður, skulu allar eignir þess fara til tölvunarfræðideildar; verði hún ekki við lýði skulu eignir seldar og ágóði nýttur til stofnunar sjóðs til styrktar Frjáls hugbúnaðar. 10. Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi félagsins og skal tillögum til lagabreytinga skilað til formanns í síðasta lagi þremur sólarhringum fyrir aðalfund og skal stjórnin sýna félagsmönnum innsendar breytingartillögur svo fljótt sem auðið er. Til samþykktar lagabreytingum þarf atkvæði 2/3 fundarmanna. Kosning í embætti skal vera leynileg sé þess óskað af einhverjum atkvæðisbærum fundaraðila. 11. Lög þessi öðlast þegar gildi.
|